Tilvitnun aldarinnar.

 

Sá þetta áðan og varð að geyma þetta fyrir ókomnar kynslóðir.

 
Svo þegar ég reyni aftur að koma innlegginu að, fæ ég tilkynninguna: "Þér er ekki heimilt að skrá athugasemdir" – greinilega vegna þess að hún þolir ekki mótrök, því að ekkert var dónalegt í þessu.

Af gefnu tilefni.

Ég hætti að vinna þarna fyrir hálfu ári, tæplega.
mbl.is Eldur á Hótel Loftleiðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jólasíld

Hér fylgir uppskrift af einni af síldarsortunum sem ég gaf völdum aðilum í jólagjöf, þetta er sú vinsælasta.

  1. Hitið í potti 3 bolla af vatni, 2 af sykri og 1 af ediki. Epla eða hvítvínsedik koma best út. 
  2. Setjið í pottinn 2 negulnagla, hálfa anísstjörnu, 5 einiber og hálfa litla kanilstöng. Látið standa á vægum hita í svona hálftíma.
  3. Skrælið 3 appelsínur. Notið annaðhvort beittan flysjara, sem tekur einungis ysta lagið án þess að neitt hvítt fylgi, þá eða rifjárn.
  4. Takið pottinn af hitanum, skellið berkinum útí ásamt einföldum (eða fleirföldum) grand mariner.
  5. Skellið loki á pottinn og inn í ísskáp. Látið standa þangað til hann kólnar alveg, smakkið þá djúsinn til með örlitlu salti, sigtuðum safa úr appelsínunum og jafnvel meira grandi.
  6. Meðan potturinn kólnar er gott að taka síldina til. (Mæli með því að fara í bónus og grípa einfalda marineraða síld/lauksíld. Flest íslensk síld er sama góða ora síldin í mismunandi krukkum.) Sigtið löginn sem síldin kemur í frá, tínið frá laukbita og krydd.
  7. Skellið síldinni í fallega krukku, hellið köldum leginum yfir og látið standa í ísskáp yfir nótt.
Flott jólagjöf, sérstaklega lagleg ef öll krydd fá að fljóta með í krukkuna og það er gott úrval af góðum krukkum í IKEA. Þessi síld hentar sérstaklega vel á snittur eða smárétti til að byrja borðhald á jólunum. Best er að bera hana fram á vel smurðu rúgbrauði.

Jólamatur - Hvað er til ráða?

Þetta verður ekki löng færsla, eða merkileg.

Einungis til þess að þeir sem að eru í einhverri óvissu um hvernig á að bera sig að jólamatnum geti lagt hér inn spurningu og ég svara því svo í næsta pistli.

Þetta er aðalega vegna þess að ég á allveg hrikalega erfitt með að ákveða mig hvað ég á að hafa í jólamatinn...


Flensa

Fyrst að maður er hvort eð er hálf sloj þá getur maður allveg eins haldið áfram með þessa netpest, að áeggjan Kristinns

Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina:

  • Byggingaverkamaður
  • Gæslustörf á útihátíðum, tónleikum og fleira
  • Handlangari á innrömmunarverkstæðinu hjá gamla
  • Matreiðslumaður

Fjórar bíómyndir sem ég held upp á:

  • The army of darkness 
  • Shogun assassin
  • Dr. Strangelove
  • Monty Python's Life of Brian

Fjórir staðir sem ég hef búið á:

  • Grafarholtið 
  • Grafarvogur
  • Norðurmýri
  • Hafnarfjörður

Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:

  • Penn & Teller's Bullshit
  • Monty Python's Flying circus
  • Black Adder
  • Fóstbræður

Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:

  • Köben
  • Leuven
  • London
  • New York

Fjórar síður sem ég skoða daglega fyrir utan blogg:

  • Fésbókin
  • Ótrúlegur fjöldi af myndasögum
  • b2.is
  • /b/

Fernt sem ég held uppá matarkyns:

Bara fernt?

  • Tornado Rossini
  • Foie gras
  • Daunillir, útlenskir ostar
  • Spaghetti bolognase gærdagsins, hitað upp með spældu eggi

Fjórar bækur sem ég hef lesið oft:

  • Allar bækur eftir Terry Pratchett
  • Preacher serían
  • Larousse Gastronomique
  • Kitchen Confidential

Fjórir bloggarar sem ég klukka:

Ég kann ekki við að vera smita fleiri af þessari flensu, en þeim sem hafa verið útundan hingaðtil er velkomið að klukka sig sjálfa í mínu nafni.


Herða ráðamenn ólina?

Ég myndi þora að veðja að ráðamenn, borgarstjórar (já, svo sannarlega í fleirtölu) eða aðrir ríkisbubbar láti sér ekki detta í hug að skerða sína sneið af kökunni. Meðan það telst sjálfsagt að greiða ráðherrum laun yfir milljón á mánuði, og púkka uppá almenna þingmenn endalaust með greiðslum fyrir nefndarstörf, þá er ekki til fé til að greiða ljósmæðrum. Konum með háskólamenntun, sem vinna lífsnauðsynlegt starf.

Þá fer ég ekki að minnast á staðlað bruðlið í þessu liði. Fljúgandi um heiminn þveran og endilangan til að sýnast stórlaxar, kokkteilboð og pinnaveislur fyrir fáránlegar upphæðir og hótelgistingu steinsnar frá sínum eigin heimilum.

 Hertu þitt eigið belti, Geir. Ól almúgans er nógu strekkt.


mbl.is Þurfum að búa okkur undir tímabundnar fórnir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jákvætt framtak.

Jákvætt framtak með öllu. Fátt sem lætur manni líða eins og maður sé að afreka eitthvað og þegar maður er að elda mat sem maður hefur ræktað eða veitt sjálfur, hvort heldur sem það er kálhaus eða urriði. Það gleður mig að sjá viðleytni stjórnvalda til að hjálpa þeim sem að vilja bæta sig.

Ég myndi glaður rúnta niðrá hraun og sýna mönnum sitthvað um hvað er hægt að gera úr  uppskerunni. Enda fátt skemmtilegra en að elda úr fersku grænmeti.


mbl.is Safnað fyrir gróðurhúsi á Litla Hraun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næstum rétt.

Nema það er í Belgíu, allavega næstu vikurnar.
mbl.is Fegurstu konurnar ekki á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fordómafasismi og rasistanasismi!

Hvernig væri ef við færum svo að nota þessi orð þar sem þau eiga við?  Ofnotkun á meiningarþrungnum orðum veldur svokölluðu "úlfsheilkenni". Fasisti og rasisti verða fljótlega orð eins og melur og snúður með þessu áframhaldi. Köllum fólk það sem það er, fífl er gott orð, sem þegar er búið að rýja öllum alvarleika, kallið fólk fífl. Ekki fasista.

Hér fylgja nokkrar skilgreiningar á nokkrum af topporðum moggabloggara:

Fordómur, -ar

k, hleypidómur, ógrundaður dómur

 

Fasismi, -a

k, andsósíalísk stjórnmálahreyfing, er stefnir að vopnaðri kúgun ríkisvalds (með her eða lögreglu) á almenningi

 

Rasismi, -a

k, andúð á kynstofni, kynætti, hópi einstaklinga með sérstök einkenni

 

Nasismi, -a

k, fasísk stjórnmálastefna, einkum eins og hún birtist í Þýzkalandi á valdatímum Hitlers (1933-45)

 

Þetta innskot var í boði orðabókar Árna Böðvarssonar frá 1980 í samstarfi við úrillan matreiðslumann. 


Vandamál við trúarbrögð - sjónarhorn guðleysingja

Hér ætla ég að tíunda nokkur atriði sem hafa orsakað skort minn á trú á æðri máttarvöld. Kristnum kann að þykja ég leggja þá í einelti, en það er einungis vegna þess að ég hef orðið fyrir víðtækari reynslu af kristnu fólki, orðum þeirra og gjörðum en annarra trúarbragða. Engar áhyggjur, ég trúi allvel jafn ekkert á biblíska guðinn og alla hina. En svona til að hafa þetta klassískt þá reyni ég að teygja þetta upp í almennilegan topp 10 lista, í engri sérstakri röð.

 

Heilagastasta ritið

Margir ganga út frá því að biblían sé heilagur sannleikur, guðlega innblásin og sannur með öllu. Meðan aftur á móti er Kóraninn, Mormónsbók, Hávamál og Talmudinn bara skrafl á pappír. Jafnvel þótt einhver vers í biblíunni hefðu komið frá guði, hversu mikið af því hefði lifað af óteljandi umskrifanir, þýðingar og söguhagræðingu síðastliðinna 2000 ára?

 

 Siðferðisleg sjálfumgleði

Margir virðast sannfærðir um að sú siðferðislega heimspeki sem þeir aðhyllast sé öðrum betri. Sjálfur geri ég það, enda er það mitt siðferði, ekki fengið úr pakka eða bók. Margar hugmyndir kristninnar eru mjög góðar, samanber náungakærleik. Stundum eiga trúaðir til að gleyma þessum kærleika þegar kemur að fólki sem sumir geta túlkað sem svo að séu ekki bókinni samboðnir. Ef einhver var ekki að skilja þá var ég að meina andúð trúaðra gegn samkynhneigðum og réttindum þeirra til að stofna til fjölskyldu. Einhverstaðar var talað um sjónræna bjálka og syndlaust grjótkast (í glerhúsi).

 

Trúboð

Þetta á ekkert endilega við kristna frekar en múslima eða mormóna en á sérstaklega við þá sem eru að reyna að ná til barna. Flest trúarbrögð eru virkt að reyna að ná fleirum á sitt band, sumir gera það af misvísuðum kærleik, reyna að forða fólki frá vítisvist. Aðrir gera það til að reyna að tryggja sér himnavist með því að bæta í söfnuðinn, einskonar himneskt pýramídaplott. Eini söfnuðurinn sem ég veit að er með stranga reglu gegn trúboði er Ásatrúarfélagið og dafna þeir engu að síður.

 

Eftirlífs-elítismi

Flestar útgáfur af kristni sem ég hef séð lofa manni ýmist vítisvist eða engu boðskorti í eftirlífspartíið. Það er ekkert pláss fyrir fólk sem að hefur lifað heiðvirðu lífi, komið vel fram við náungann og verið sér og sínum trúr ef viðkomandi hefur ekki játast heilögum anda. Í Ragnarökum ásanna þá er staður nefndur Gimlé og þar sleppa heiðvirðir menn, sem þó ekki komust til Valhallar, við bál Surts og taka þátt í að koma heiminum á réttan kjöl á ný. Í kristni bíður þeirra allt frá helvíti til limbósins.

 

Ritning>röksemd

Þegar stendur í bókinni að guð hafi skapað himin og jörð meðan allar rannsóknir sýna að jörðin sé mynduð úr efni sem varð afgangs við myndun sólarinnar og fólk þarf raunverulega að hugsa sig um? Sama á við um sólmiðjuvesenið á rannsóknarréttinum og þetta ID vs. Darwin vesen.

 

Sannskoska röksemdin

Þegar trúaðir fara að eigna sér afrek fólks og afneita ólátum þess. Þegar bent er á hina og þessa vísindamenn og heimspekinga og sagt "Þarna fór kristinn maður". Má vera, gætir eins bent á kauða og sagt "Þarna fer konungssinni/lýðræðissinni/endurreisnarmaður". Eins er það óþolandi þegar upp kemst um kirkjunnar menn sem sýna af sér fádæma siðleysi og þá eru menn fljótir að hrista hausinn og segja "Hann er greinilega ekki kristinn fyrst hann lætur svona".

 

Kristin þjóð

Hversu kristnir eru íslendingar raunverulega? Ég efast um að þau 90% prósent íslendinga sem eru í þjóðkirkjunni séu jafn kristnir og þeir sem að tönglast hvað mest á þessum 90%. Flestir láta sér duga skírnir, fermingar, brúðkaup og jarðarfarir. Mér segir svo hugur að það sé aðallega vegna þess að það eru ekki margir skemmtilegir valmöguleikar í staðinn. Flestir fæðast inn í kirkjuna, leyfi mér að efast um að margir séu að sækja þangað.

 

Siðferðisleg heimtufrekja

Heimurinn stendur ekki og fellur með boðorðunum 10. Sambærilegar reglur voru til löngu áður en gyðingarnir flúðu Egyptaland og líka í menningarheimum sem höfðu aldrei heyrt af síðhærða trésmiðnum frá Nazaret. Ég trúi ekki staf í biblíunni, nema kannski þarna fremst þar sem þeir segja mér hvar hún var prentuð, en er samt fyllilega fær um að sleppa því að myrða, stela, nauðga eða brúka munn við foreldra mína. Þessi hugmynd um að siðferðislega færi heimurinn til helvítis án guðlegs dóms er sambærilegt við að gefa bara stefnuljós þegar löggan er beint fyrir aftan mann. Fólk getur raunverulega komið vel fram við aðra af tillitsemi, ekki ótta við refsingu.

 

Dómsdagsspámenn 

Á efsta degi mun [setjið inn sendiboða dómsdags] [setjið inn aðferð við að spila á hljóðfæri] [setjið inn hljóðfæri] sinn/sitt/sína [strokið út það sem ekki við á] og [setjið inn ógnvald] koma úr/ofan af [strokið út það sem ekki við á] dýpinu/himnum [strokið út það sem ekki við á] og eldur/flóðbylgja/frost/eldgos/jarðskjálfti [strokið út það sem ekki við á] tortíma öllum syndugum í augum [setjið inn nafn guðlegrar veru].

Þið getið vafalaust fundið þessa efnisgrein í hvaða trúarriti sem er. Það hafa verið menn sérhverja einustu kynslóð síðan trúarbrögð voru fundin upp sem hafa verið sannfærðir um að allt sé á leiðinni í vaskinn og dómsdagur sé á þriðjudaginn, fimmtudag í það seinasta. Það væri kannski auðvelt að sjá fyrir sér dómsdag á bronsöld og þú ert að sjá þitt fyrsta eldgos, en hnattræn tortíming? Þú þyrftir náttúruhamfarir á borð við vænsta hnullung utanúr geimnum, hikstakast hjá sólinni eða ofstækismann í hvíta húsinu sem er orðinn þreyttur á að bíða eftir dómsd....   Ó boj... 

 

Réttlæting óréttlætis

 Þegar fólk er að réttlæta kynjamisrétti, kynþáttahatur, stríð, þjóðarmorð, pyntingar og ofsóknir með trúarritum. Ekki reyna að veifa "þeir voru ekkert kristnir" spjaldinu. Krossfarar stunduðu margskonar voðaverk, rannsóknarrétturinn er með svarta samvisku og þessir snaróðu hryðjuverkamenn sem að reglulega sprengja sig í loft upp til að drepa nokkra saklausa borgara í leiðinni gera þetta allir með annað hvort kóran eða kross í vasanum. Ekki koma með "Stalín var trúlaus" spilið, hann framdi sín voðaverk í nafni kommúnisma, ekki trúleysis. 

 

Þetta var ekki skrifað sem árás á trú, hvorki kristna né aðra. Einungis að ég hef verið spurður hversvegna ég neita að trúa "eins og allir aðrir" eða hvað ég hef eiginlega á móti trúarbrögðum.

 

 

Öllum er frjálst að kommenta og tjá sig svo fremi sem menn gera það kurteislega í garð hvors annars. Ég gef mér það bessaleyfi að stroka út athugasemdir sem flokkast sem skítkast og leiðindi og bendi á að lög Godwins geta hæglega orðið fólki út um stígvél, stærð 43, í afturendann.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband